Sport

Kaup á leikmönnum í enska boltanum

Everton hefur boðið í brasilíska sóknarmanninn Edu hjá Celta Vigo en hann var í láni hjá Real Betis á síðustu leiktíð. Liverpool er einnig talið hafa áhuga á leikmanninum. Arsenal menn eru vongóðir um að landa Julio Baptista frá Sevilla á tíu milljónir punda en Manchester United og Tottenham eru einnig að reyna að ná í sóknarmanninn. Knattspyrnumaðurinn skapstóri Craig Bellamy gekk í gær í raðir Blackburn Rovers frá Newcastle fyrir tæpar fimm milljónir punda. Evrópumeistarar Liverpool eru taldir landa Mohamed Sissoko frá Valencia fyrir fimm og hálfa milljón punda en Everton er talið hafa boðið fimm milljónir, leikmaðurinn var keyptur til Valencia af Rafa benitez fyrir tveimur árum en hann er tvítugur miðjumaður. Hann skrifar væntanlega undir 4 ára samning við Liverpool í næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×