Sport

Ólafsvíkur-Víkingar skoruðu fjögur

Ólafsvíkur-Víkingar skoruðu fjögur mörk og unnu 2-4 sigur á Þór á Akureyri í 1. deild karla í dag og komust þar með upp í fjórða sæti deildarinnar. Fjölnismenn unnu einnig góðan sigur á KS og eru líka komnir upp í efri hluta deildarinnar. Reykjavíkur-Víkingar töpuðu hinsvegar stigum á Húsavík gegn Völsungi sem er í 9. sætinu en Víkingar halda engu að síður 2. sæti deildarinnar. Völsungur komst yfir í upphafi leiks en Víkingar jöfnuðu fljótlega og þannig lauk leiknum. 1. deild karla í fótbolta í dag:Þór Ak.–Víkingur Ó. 2–4 0–1 Eyþór Páll Ásgeirsson (5.), 0–2 Slavisa Mitic (6.), 0–3 Hermann Geir Þórsson (11.), 1–3 Lárus Orri Sigurðsson (13.), 1–4 Eyþór Páll Ásgeirsson (22.), 2–4 Arnljótur Ástvaldsson, víti (50.). Fjölnir–KS 4–1 1–0 Pétur Georg Markan (23.), 2–0 Atli Guðnason (26.), 3–0 Atli (50.), 3–1 Grétar Sveinsson (70.), 4–1 Tómas Leifsson (75.). Völsungur–Víkingur R. 1–1 1–0 Hermann Aðalgeirsson, víti (6.), 1–1 Jón Guðbrandsson (12.).



Fleiri fréttir

Sjá meira


×