Sport

Figo dreymir um Liverpool

Knattspyrnumaðurinn Luis Figo hjá Real Madrid segir það draum sinn að leika með Liverpool. Figo og Liverpool hafa að sögn sögn fjölmiðla samið um kaup og kjör en Madrídingar vilja fá tvær milljónir punda fyrir leikmanninn sem á eitt ár eftir af samingi sínum. Real keypti Figo á sínum tíma frá Barcelona fyrir 37 milljónir punda. Figo er 32 ára. Liverpool vonast eftir því að Southampton taki sjö milljóna punda tilboði í sóknarmanninn hávaxna Peter Crouch.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×