Sport

Bikarmeistararnir úr leik

Íslandsmeistarar Vals unnu stórsigur, 1-6 og slógu út bikarmeistara ÍBV í 8 liða úrslitum VISA bikars kvenna á Hásteinsvelli í kvöld en þessi lið mættust einmitt í úrslitaleik bikarsins í fyrra. Dóra María Lárusdóttir skoraði þrennu fyrir Val en þær Elín Svavarsdóttir, Rakel Logadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir eitt mark hver. Bryndís Jóhannesdóttir skoraði eina mark Eyjastúlkna. VISA-bikar kvenna:ÍBV–Valur 1–6 0–1 Dóra María Lárusdóttir (14.) , 0–2 Elín Svavarsdóttir (36.), 0–3 Dóra María (52.), 0-4 Dóra María (54.), 0–5 Rakel Logadóttir (71.), 1–5 Bryndís Jóhannesdóttir (77.), 1–6 Margrét Lára Viðarsdóttir (85.). Valsstúlkur eru fyrstar til að tryggja sér sæti í undanúrslitum keppninnar en hinir leikirnir þrír í 8 liða úrslitunum fara allir fram annað kvöld. Leikirnir eru; Breiðablik - Keflavík Fjölnir - ÍA Stjarnan - KR Allir hefjast þeir kl. 20:00.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×