Sport

Man.Utd má ekki tapa einum leik

Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Man.Utd, segir að lið sitt megi ekki tapa einum einsta leik á næsta tímabili, ætli liðið sér að eiga möguleika á enska meistaratitlinum. "Við verðum að vera komnir í toppform strax frá fyrsta leik," segir Ferguson. "Hlutirnir eru ekki eins og þeir voru áður. Í dag er deildin orðin þannig að þeir sem ætli sér að verða meistarar mega líklega ekki tapa leik allt tímabilið. Sjáið bara síðustu tvær líktíðir, samanlagt hafa Arsenal og Chelsea tapað hálfum leik," segir Ferguson, en Chelsea tapaði aðeins einum leik í fyrra á meðan Arsenal varð fyrsta liðið til að fara taplaust í gegnum heilt tímabil í úrvalsdeildinni árið 2004.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×