Sport

Messi vakti athygli

NordicPhotos/GettyImages
Argentínska ungstirnið Lionel Messi hjá Barcelona átti stórleik fyrir lið sitt í gærkvöldi, þegar spænska liðið vann auðveldan 4-1 sigur á Udinese frá Ítalíu. Þó svo að Brasilíumaðurinn Ronaldinho hafi skoraði þrennu í leiknum og verið í fyrirsögnum blaða á Spáni, var það frammistaða unglingsins sem var á allra vörum í gær. Messi átti hlut í þremur marka Barcelona og vilja sparkspekingar á Spáni meina að hann sé að ýta meira og meira undir samlíkingar við landa sinn Maradona. Messi er aðeins átján ára gamall, en er talinn eitt mesta efni í knattspyrnuheiminum í dag. "Messi sýndi svo sannarlega hvers má vænta af honum í framtíðinni. Hann er fljótur og leikinn, og þó hann sé enn ungur að árum, held ég að við megum eiga von á stórum hlutum frá honum í framtíðinni," sagði Frank Rijkaard, stjóri Barcelona.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×