Menning

Ungir á óperur

Efnilegur barnasöngvari varð til þess að Íslenska óperan ákvað að setja upp Tökin hert eftir Benjamin Britten í vetur. Ýmislegt fleira mun þó rata þar á svið, og er stefnt að því að meðalaldur óperugesta lækki umtalsvert, því að allir yngri en 26 ára fá helmingsafslátt á þessa vinsælu óperu Brittens.

Dagskrá Íslensku óperunnar var kynnt með pompi og prakt í dag. Tökin hert og Öskubuska eftir Rossini verða stærstu verkefni vetrarins, auk óperettunnar Nótt í Feneyjum og fjölmargra annarra verkefna af ýmsum toga, svo sem málþinga og hádegistónleika. Óperustjórinn segir alltaf erfitt að velja aðalverkefni, en Tökin hert hefur aldrei verið sett upp hérlendis fyrr.

Óperustjórinn, Bjarni Daníelsson, segir ungan efnilegan söngvara takast á við burðarhlutverk í Tökin hert, Ísak Ríkharðsson, og því sé uppsetningin meðal annars möguleg.

Öskubuska Rossinis hefur heldur aldrei verið sett upp hér fyrr. En Íslenska óperan stefnir líka að því að laða yngri gesti inn í Gamla bíó í vetur. Þannig á að bjóða öllum gestum yngri en 26 ára helmingsafslátt af miðaverði á óperu Brittens, Tökin Hert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.