Sport

Osasuna kemur á óvart á Spáni

Osasuna gerði best toppliðanna á Spáni í dag þegar liðið lyfti sér upp í 3. sæti fótboltadeildarinnar La Liga með 1-0 útisigri á Deportivo La Coruna. Inaki Munoz skoraði sigurmarkið á 19. mínútu og er Osasuna með 12 stig í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Getafe sem lagði Valencia í gærkvöldi. Real Madrid  er 1-0 yfir gegn Mallorca þegar skammt er til hálfleiks og getur með sigri komist í 2. sæti deildarinnar eftir dapurt gengi í upphafi leiktíðar. Ronaldo skoraði markið á 33. mínútu. Úrslit dagsins á Spáni urðu eftirfarandi; Cadiz 1 - 1 Celta de Vigo Deportivo La Coruna 0 - 1 Osasuna Racing Santander 1 - 2 Deportivo Alaves Real Sociedad 1 - 1 Real Betis Sevilla 1 - 1 Espanyol Villarreal 3 - 1 Athletic Bilbao Úrslit laugardagsins á Spáni. Barcelona 2 - 2 Zaragoza Getafe 2 - 1 Valencia Getafe er efst með 14 stig, Celta Vigo í 2. sæti með 13 stig Osasuna í 3. sæti með 12 stig, Real Madrid í 4. sæti með 10 stig og Barcelona í 5. sæti með 9 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×