Sport

Real Madrid í 3. sætið

Real Madrid færðist upp í 3. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með stórsigri á Mallorca, 4-0. Mörk Real voru albrasilísk í kvöld, Brasilíumaðurinn Roberto Carlos skoraði tvö af mörkum Real og landar hans Ronaldo og nýliðinn Julio Baptista eitt hvor. David Beckham átti stórleik og lagði þrjú af mörkunum. Real Madrid er nú í 3. sæti með 12 stig eins og Osasuna sem er í 4. sæti en með lakari markatölu. Getafe er efst með 14 stig og Celta í 2. sæti með 13 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×