Tillögur um viðbrögð samþykktar 7. október 2005 00:01
Mikilvægt er að bráðabirgðarniðurstöður á endurskoðaðrar viðbúnaðaráætlunar, vegna hugsanlegs heimsfaraldurs fuglaflensu, liggi fyrir sem fyrst. Ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag tillögur um viðbrögð og aðgerðir ef fuglaflensufaraldur fer á stað. Jafnframt á að gera úttekt á efnahagslegum áhrifum hugsanlegs heimsfaraldurs hér á landi og aðgerðum sem gæti þurfti að grípa til vegna þeirra. Fuglaflensa er banvænasta flensa sögunnar. Meira en helmingur þeirra sem sýkjast lifir ekki af. Tilfelli hafa nú þegar komið upp í Síberíu og í Asíu og þá berast fregnir af því að hún hafi greinst í Rúmeníu. Í tillögunni sem er frá heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra segir að um leið og bráðabirgðaniðurstöðurnar liggja fyrir verði hægt að gera viðeigandi ráðstafanir vegna innkaupa og birgðahalds hjá heilbrigðisstofnunum, lögreglu og öðrum aðilum. Þegar hefur verið aflað 89 þúsund meðferðarskammta af inflúenslulyfjum. Tryggja þarf að alltaf séu til öryggisbirgðir dreypilyfja hér á landi sem samsvari þriggja mánaða notkun. Einnig á á kanna möguleika á því að íslensk fyrirtæki framleiði slík lyf. Í tillögunni sem var samþykkt er gert ráð fyrir að yfirdýralæknir standi að rannsókn á faraldsfræði fuglainflúensu hér á landi meðal farfugla og eldisfugla með það fyrir augum að afla þekkingar á útbreiðslu fuglaflensunnar og kanna líkur á smiti frá villtum andfuglum yfir í alifugla hér á landi. Lagt var til að nefndin starfi áfram og skili skýrslu um miðjan desember. Hér má tillöguna í heild sinni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Boðað til fundar ráðuneyta og nefnda Alþingis um Ölfusárbrú í dag Innlent Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Erlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Erlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Fleiri fréttir Stór skjálfti í Goðabungu Boðað til fundar ráðuneyta og nefnda Alþingis um Ölfusárbrú í dag Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Íbúar kalla eftir úrbótum á hættulegum gatnamótum við Sæbraut Tvö innbrot í verslanir í dag „Ég vil auðvitað klára kjörtímabilið“ „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Bæjarstjórinn óttast ekki fólksflótta úr Árborg Kveðst tilbúinn í kosningar þegar „þessi ríkisstjórn springur loksins“ „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi Banaslys á Sæbraut og stofnun nýs stjórnmálaflokks Vegfarandinn er látinn Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Staða karlmennskunnar, kosningavetur og átök í Mið-Austurlöndum Talaði fyrir „tveggja ríkja lausn“ á allsherjarþingi Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Hlaupið í rénum en gasmengun gæti verið á svæðinu Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Maður stunginn í brjóstkassann í nótt „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Sjá meira