Sport

Schuster framlengir hjá Getafe

Þjóðverjinn Bernd Schuster hefur náð frábærum árangri með lið Getafe í ár
Þjóðverjinn Bernd Schuster hefur náð frábærum árangri með lið Getafe í ár NordicPhotos/GettyImages

Þýski knattspyrnustjórinn Bernd Schuster hefur framlengt samning sinn við spútniklið Getafe til ársins 2008, en þetta var tilkynnt í dag. Schuster hefur náð undraverðum árangri með liðið síðan hann tók við í júní í sumar.

"Við höfum ákveðið að framlengja samning hans til ársins 2008, því okkur þykir hann hafa unnið gott starf á þeim fimm mánuðum sem hann hefur verið við stjórnvölinn hjá okkur og við stefnum hátt hjá þessu félagi," sagði forsetinn Angel Torres eftir að samningar voru í höfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×