Menning

Uppfærð útgáfa

Baltasar Kormákur
Baltasar Kormákur MYND/Hari

Íslendingar fengu að sjá uppfærða útgáfu af kvikmyndinni A Little Trip to Heaven, þegar hún var frumsýnd hér á landi í gær. Baltasar Kormákur gerði endurbætur á myndinni eftir að hún hafði hlotið misjafnar viðtökur á erlendum kvikmyndahátíðum. Hin nýja útgáfa fékk góða dóma hjá íslenskum gagnrýnendum.

Viðtökur við nýjustu mynd Baltasars Kormáks A little trip to Heaven eru góðar á meðal íslenskra gagnrýnenda. Og er Baltasar að vonum í sjöunda himni yfir því. Baltasar leikstýrði myndinni og skrifaði handritið en hún skartar nokkrum þekktum erlendum leikurum og ber þar hæst Forrest Whitaker, sem meðal annars lék í Crying Game. Myndin hefur verið sýnd á virtum kvikmyndahátíðum víða um heim og fengið misjafna dóma. Sú mynd sem Íslendingar sáu á annan í jólum er endurbætt útgáfa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×