Sport

Er í hjartaaðgerð

Alfredo di Stefano var tvisvar kjörinn knattspyrnumaður Evrópu á ferli sínum.
Alfredo di Stefano var tvisvar kjörinn knattspyrnumaður Evrópu á ferli sínum. NordicPhotos/GettyImages
Knattspyrnugoðsögnin Alfredo di Stefano sem fékk hjartaslag á jólunum, er nú í aðgerð sem ætlað er að bjarga lífi hans á sjúkrahúsi í Valencia á Spáni. Aðgerðin tekur sjö klukkustundir, en ekki var hægt að framkvæma hana fyrr en í dag því beðið var eftir að ástand hans yrði nógu stöðugt. Di Stefano er 79 ára gamall og er heiðursforseti Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×