Erlent

Hundrað uppreisnarmenn handteknir

Bandaríkjaher hefur nú handtekið meira en hundrað uppreisnarmenn í Anbar-héraðinu í vesturhluta Íraks undanfarna daga. Aðgerðir hersins í Anbar hafa staðið í fimm daga og hefur verið lagt hald á mikið magn vopna. Í gær skutu Bandaríkjamenn úr lofti á helstu vígi uppreisnarmanna í héraðinu. Þrír hermenn hafa fallið í valinn í aðgerðunum gegn einu helsta vígi uppreisnarmanna í Írak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×