Erlent

28 látnir í Írak

Fimmtán fórust í sjálfsmorðssprengjuárás við lögregluskóla í borginni Hilla í Írak í morgun á svæði sem kallað er þríhyrningur dauðans. Fyrr um daginn féllu tveir óbreyttir borgarar í Bagdad þegar bílsprengja var sprengd við bandaríska herbílalest. Í Ramadí fórust fimm óbreyttir borgarar í átökum hers og uppreisnarmanna og í Bakúba grandaði sjálfsmorðssprengjumaður sex og særði þrettán.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×