Erlent

Sprengdu upp flutningabílalest

Að minnsta kosti sjö manns létust er uppreisnarmenn sprengdu upp flutningabílalest sem var á leið að herstöð Bandaríkjamanna með vörubirgðir um 80 kílómetra frá Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Ekki er vitað nákvæmlega hverjir voru að verki en algengt er að uppreisnarmenn sitji fyrir bílalestum bandaríska hersins í Írak og ráðist sé á þær með eldflaugum eða handsprengjum. Þá er einnig algengt að bílar verði fyrir sprengjum sem komið er fyrir í vegköntum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×