Erlent

Óbreyttir borgarar létust

Tveir óbreyttir borgarar létust þegar skotbardagar brutust út á milli breskra hermanna og mótmælenda í borginni Basra í Írak í gærkvöldi. Fyrr um daginn voru tveir breskir leyniþjónustumenn í dulargervi handteknir fyrir að skjóta að írökskum lögreglumönnum sem gerðu sig líklega til að handsama þá. Mikil mótmæli brutust út þegar ljóst var að mennirnir tveir væru breskir hermenn. Ekki minnkuðu lætin þegar breskar hersveitir réðust inn í fangelsið á sex skriðdrekum til að frelsa mennina. Tugir írakskra fanga sluppu út úr fangelsinu í kjölfarið. Að minnsta kosti fimmtán manns slösuðust í átökunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×