Erlent

Rúmensku gíslunum sleppt

Rúmensku blaðamönnunum þremur, sem verið hafa í haldi mannræningja í Írak í nærri tvo mánuði, var sleppt í dag. Fjórði gíslinn, sem starfað hefur sem túlkur Rúmenanna, fékk einnig frelsi. Fólkinu var rænt í Bagdad þann 28. mars síðastliðinn. Mannræningjarnir höfðu hótað að drepa fjórmenningana ef hinir 800 rúmensku hermenn sem eru í Írak yrðu ekki kallaðir heim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×