Erlent

Fjórir fallnir í morgun

Að minnsta kosti fjórir hafa fallið í valinn og átta eru særðir eftir tvær sprengjuárásir í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sú fyrri beindist að bílalest írakskra hermanna en sú síðari sprakk í fjölfarinni götu í miðbænum og skemmdi íbúðarbyggingu og sex bíla. Í gærkvöldi féllu að minnsta kosti þrjátíu manns í valinn í sjálfsmorðssprengjuárás sem átti sér stað við kirkjugarð, nærri borginni Mosul, í gærkvöldi. Fjöldi fólks hafði safnast saman í kirkjugarðinum þar sem verið var að jarða háttsettan embættismann úr röðum Kúrda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×