Tíska og hönnun

Heitustu matardiskarnir í dag

Einir heitustu matardiskarnir á markaðnum í dag eru Fornasetti diskarnir sem eru eiginlega of flottir til að borða af.

Þeir voru hannaðir af Piero Fornasetti en hann notaði andlit einnar konu á öllum diskunum í mismunandi útfærslum og í dag eru til rúmlega 350 tegundir af diskum.

Ekki allar gerðir af diskunum eru í framleiðslu í dag en sonur Piero, Barnaba, tók yfir fyrirtæki föður síns er hann lést árið 1998 og hóf endurframleiðslu á vissum tegundum.

Hægt er að nálgast diskana og nánari upplýsingar um Fornasetti fyrirtækið á vefsíðunni fornasetti.com og kosta þeir um sex þúsund íslenskar krónur stykkið.

Piero notaði andlit sömu konunnar á alla diskana sína.
Piero notaði andlit sömu konunnar á alla diskana sína.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.