Tíska og hönnun

Pjúra íslensk hönnun

Þær Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir, Hildur Hinriksdóttir, Íris Eggertsdóttir og Elín Arndís Gunnarsdóttir eru konurnar á bak við Pjúra. Þær hafa unnið að hönnun og listsköpun undanfarin ár en létu í vor gamlan draum rætast og opnuðu verslun þar sem þær selja eigin hönnun. Búðin fór af stað í apríl og að sögn Kolbrúnar gengur reksturinn vel.

"Við hönnum allt og saumum sjálfar, hver og ein undir sínu merki. Þetta er fatnaður á konur og börn og við erum líka með töluvert úrval af fatnaði fyrir barnshafandi konur," segir Kolbrún.

Búðin er björt og falleg og hönnun þeirra vinkvennanna nýtur sín vel. Verslunin er í sama húsi og Frú Fiðrildi og saman mynda búðirnar skemmtilega heild. Stemningin er notaleg og stundum er staðið fyrir skemmtilegum uppákomum. Um daginn var til að mynda haldið dömukvöld í Pjúra og þangað mættu um 100 manns.

Þessa dagana er sumarútsala í Pjúra og góður afsláttur af völdum vörum. Pils, kjólar og bolir eru á tilboði og hægt er fá einstakar flíkur á frábæru verði.

Fallegt rautt dress eftir Kolbrúnu sem hannar undir merkinu Kow. Bolur 4.360 kr, pils 7.800 kr.Vilhelm
Hildur hannar barnafatnað undir merkinu HiN. Buxur 3.500 kr. mussa 3.000 kr.Vilhelm
Skemmtilegar barnahúfur eftir Hildi.Vilhelm
Fatnaður Írisar ber nafnið Krúsilíus. Blár bolur með fiðrildi 4.300 kr. pils 8.700 kr. gyllt hálsmen 2.500 kr.Vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.