Erlent

Forstjóri WorldCom dæmdur

Bernard Ebbert, fyrrum forstjóri WorldCom, var í gær dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir svæsin fjársvik og samsæri,sem leiddi fyrirtækið í stærsta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. Hluthafar í WorldCom töpuðu um 12 þúsund milljörðum íslenskra króna og 20 þúsund starfsmenn fyrirtækisins misstu vinnuna. Þetta er þyngsti dómur sem fallið hefur í málum sem þessum frá upphafi í Bandaríkjunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×