Erlent

Lögreglumenn drepnir í Írak

Uppreisnarmenn í Írak réðust á lögreglustöð í vesturhluta landsins í gær og drápu þar átta manns. Í norðurhluta landsins geisaði þriggja klukkustunda byssubardagi milli skæruliða og sveita Bandaríkjamanna og Íraka. Fimm fórust í sjálfsmorðsárás nærri heimili háttsetts lögreglumanns í borginni Samarra. Í morgun ók maður bíl, fylltum sprengiefni, á höfuðstöðvar lögreglunnar í Mósúl og sprengdi sig í loft upp. Hluti byggingarinnar hrundi og fimm lögreglumenn fórust. Björgunarsveitir leita í rústunum sem stendur.  Þá var einn yfirmanna lögreglunnar í Bagdad ráðinn af dögum í morgun þar sem hann var á leið til vinnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×