Erlent

Á fjórða tug liggur í valnum

Á fjórða tug manna liggur í valnum eftir röð hryðjuverkaárása í bænum Mósúl í Írak í morgun. Maður sprengdi sig í loft upp við varðstöð við sjúkrahús, annar við aðalstöðvar lögreglunnar og sá þriðji við herbækistöð í borginni. Mósúl, sem er þriðja stærsta borg Íraks, er sögð meginbækisstöð uppreisnar- og hryðjuverkamanna. Al-Qaida sveitir Abu Musabs al-Zarqawis lýstu tilræðunum á hendur sér en talsmenn hersetuliðsins segja stöðugan straum hryðjuverkamanna yfir landamærin frá Sýrlandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×