Sport

Skoski bankinn hættir að styðja úrvalsdeildina

Frá leik Rangers og Hibernian í skosku úrvalsdeildinni á dögunum
Frá leik Rangers og Hibernian í skosku úrvalsdeildinni á dögunum NordicPhotos/GettyImages
Skoski bankinn, aðalstyrktaraðili skosku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, hefur tilkynnt að hann muni ekki framlengja samning sinn við deildina sem rennur út á næsta ári. Bankinn hefur þá verið aðalstyrktaraðili deildarinnar í níu ár, en forráðamenn úrvalsdeildarinnar hafa ekki áhyggjur af þessu og segjast bjartsýnir á að útvega nýjan stuðningsaðila á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×