Viðskipti innlent

Greinendur Danske mæta

Höfundar neikvæðra skýrslna Danske Bank um íslenskt efnahagslíf munu standa fyrir máli sínu hérlendis í næstu viku.

Félag viðskipta- og hagfræðinga heldur hádegisverðarfund á miðvikudaginn eftir viku þar sem Carsten Volgreen, aðalhagfræðingur greiningardeildar Danske Bank, og Lars Christensen sérfræðingur munu halda erindi og svara spurningum.

Fundurinn ber yfirskriftina "Horfur í efnahagsmálum" og er ekki að efa að umræður geta orðið fjörugar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×