Innlent

Sækist eftir 1. sæti

Mynd/Vísir

Jón Gunnarsson alþingismaður hefur ákveðið að sækjast eftir fyrsta sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Í tilkynningu, sem hann sendi frá sér í gærkvöldi segist hann sækjast eftir sætinu í kjölfar þess að Margrét Frímannsdóttir tilkynnti í gær að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér í kosningunum í vor. Talið er líklegt að Björgvin Sigurðsson og Lúðvík Bergvinsson muni einnig gefa kost á sér í fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, en þar verður haldið prófkjör í byrjun nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×