Búist við langvinnu stríði 19. júlí 2006 07:00 Hætta sér út úr skýli Þessir Ísraelar byrjuðu á að kanna aðstæður í gær þegar þeir hættu sér út úr skýli í bænum Nahariya, skammt frá staðnum þar sem flugskeyti frá liðsmönnum Hizbollah varð manni að bana. MYND/AP
Níu af hverjum tíu Ísraelum telja árásir ísraelska hersins á Líbanon eiga fullan rétt á sér, samkvæmt ísraelskri skoðanakönnun sem birt var í gær. Sextíu prósent aðspurðra Ísraela eru þeirrar skoðunar að herinn eigi að halda árásunum áfram þangað til Hizbollah-samtökunum í Líbanon hefur verið tortímt. Ólíklegt þykir að ísraelsk stjórnvöld ætli sér að hætta hernaðaraðgerðunum í bráðina og virðast þau reikna með langvinnum átökum. Í gær tóku þau þó undir tillögur frá Sameinuðu þjóðunum um að fjölgað verði til muna í alþjóðlegum friðargæslusveitum í suðurhluta Líbanons. Þau virðast einnig hafa fallið frá því skilyrði sínu fyrir friðarsamningum að vopnaðar sveitir Hizbollah-samtakanna verði fyrst lagðar niður. Í gær fórust ellefu líbanskir hermenn í árásum ísraelska hersins og flugskeyti frá Hizbollah urðu einum ísraelskum manni að bana í ísraelska bænum Nahariya. Alls hafa átökin kostað meira en 230 manns í Líbanon lífið og eru langflestir þeirra óbreyttir borgarar. Flugskeyti sem Hizbollah-samtökin hafa skotið yfir til Ísraels hafa orðið þrettán manns að bana, en tólf ísraelskir hermenn hafa einnig fallið í átökunum.
Erlent Mest lesið „Þetta er ekki sanngjarnt, Einar“ Innlent Hnífurinn fannst í skotti forráðamanna Innlent Sitja sem fastast og hleypa gröfum og vörubílum ekki fram hjá Innlent Fyrstu trén felld á morgun Innlent Girnist Gasa og vill íbúana burt Erlent Hefnd Ingu kom í bakið á Einari Innlent Gengu kílómetra með slasaðan ferðamann á börum Innlent „Við í Framsókn erum að setja allt í loft upp“ Innlent Framkvæmdir á Bessastöðum kostuðu 120 milljónir Innlent Foreldrar Bryndísar Klöru í Kompás Innlent Fleiri fréttir Girnist Gasa og vill íbúana burt Segja Ísraela hafa brotið vopnahléssamninginn Ítrekar að honum er alvara um Kanada Forsetinn segir af sér Kölluðu Páfagarð „siðspilltan“ og „barnaníðs“ ríki Nasistadýrkun og gyðingaandúð: Ye hættur á Twitter Bandaríkin og öfgahægrið efst á baugi hjá þýsku kanslaraefnunum Selenskí segir nauðsynlegt að tryggja varanlegan frið Ísraelsher hverfur frá Netzarim en framhaldið óljóst Hótar 25 prósent tollum á allt stál og ál Rannsaka andlát breskra hjóna í Frakklandi Tilfinningarík stund þegar Taílendingarnir komust heim Tilfinningarnar réðu för þegar fjölskyldur hittu gíslana Afturkallar öryggisheimildir Biden Myrti sjö konur og þrjá karla Sagði upp hjá DOGE vegna rasískra ummæla Götubörn útsett fyrir kynferðisofbeldi: „Það er engin miskunn“ Sjónvarpskokkur ásakaður um áralanga óviðeigandi hegðun Sóttu fimm kílómetra inn fyrir varnir Rússa Einn höfunda Project 2025 aftur háttsettur í Hvíta húsinu Segja stefnt að því að fækka starfsmönnum úr 10.000 í 300 Lýsa yfir neyðarástandi á Santorini Trump beinir spjótum sínum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum Dómari frystir biðlaunatilboð Trump fram yfir helgi Sýrlendingar og Bosníumaður meðal látinna „Pabbi, bjargaði ég systur minni?“ Skotflaugar frá Norður-Kóreu orðnar nákvæmari Sendu nöfn allra nýrra starfsmanna CIA í tölvupósti Skipa hernum að undirbúa brottflutning Palestínumanna Var vopnaður þremur byssum Sjá meira