Innlent

Rússarnir koma!

Rússnesku skipin sem hingað koma bera af sér misgóðan þokka. Menn halda vart vatni sem líta á seglskipið Sedov sem kom til hafnar í Reykjavík á miðvikudag, svo stórt og tignarlegt sem það er.

Hins vegar hafa Hafnfirðingar ekki verið jafn heppnir með rússnesku fleyin sem liggja þar við bryggju og hafa íbúar í nágrenni hafnarinnar kvartað ítrekað til hafnaryfirvalda vegna togarans Tsefey en ljósavél hans hefur spúð svörtum reykjarmekki í hafnarmynninu svo ósóminn sést í kílómetra fjarlægð að þeirra sögn. Það er því ómögulegt að vita á hverju menn eiga von þegar Rússarnir koma.

Bannað að veiða og skemmta sér

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýnir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra á vef sínum fyrir að vilja leggja skatt á útihátíðir og vænir Björn um að vera með fordóma gagnvart skemmtanahaldi á landsbyggðinni þegar hann segir að umræðan um drykkjulæti á útihátíðum bendi til þess að ekki hugi allir skipuleggjendur nægilega vel að þeim reglum sem þeim beri að fylgja. Sigurjón segir: Það er ekki nóg með að Sjálfstæðisflokkurinn hafi svipt íbúa landsbyggðarinnar réttinum til þess að draga sér bein úr sjó, heldur er fólkið skattlagt sérstaklega ef það ætlar að skemmta sér og öðrum.

Hvað heldur Sigurjón að borgarbörnin séu að gera um verslunarmannahelgina?

Hvalfjarðarsveitasæla

Nýlega var auglýst eftir umsóknum um stöðu sveitarstjóra í Hvalfjarðarsveit. Sveitarfélagið varð til við síðustu sveitarstjórnarkosningar þegar Hvalfjarðarstrandar­hreppur, Innri-Akraneshreppur, Leirár- og Melahreppur og Skilmannahreppur sameinuðust. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og hafa 40 umsóknir borist. Fyrir kosningarnar var Sigurður Sverris Jónsson, oddviti Skilmannahrepps, harðlega gagnrýndur fyrir að verðlauna framtakssama sveit­unga sína með gjöfum, en fá sveitarfélög voru jafn vel sett fjárhagslega og Skilmannahreppur enda var hálft álver og heil járnblendiverksmiðja innan hreppsmarkanna. Það er greinilega gott að vera yfirvald í þessari sveit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×