Innlent

Tilkynnt um fljótandi lík

lögregla
Hafði í nógu að snúast um helgina. Hún kom meðal annars manni til bjargar sem flaut við Grafarvog.
lögregla Hafði í nógu að snúast um helgina. Hún kom meðal annars manni til bjargar sem flaut við Grafarvog. MYND/Hörður

 Lögregla bjargaði manni á floti rétt fyrir utan Grafarvog um þrjú leytið í gærnótt. Tilkynnt var að sést hefði lík á floti en þegar lögregla kom á staðinn, á litlum gúmmíbát, var maðurinn á lífi.

Honum var bjargað og virtist hann í annarlegu ástandi að sögn lögreglu. Hann var fluttur á spítala til aðhlynningar enda þrekaður eftir veruna í sjónum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×