Innlent

Stálu bíómyndum og sælgæti

Brotist var inn í myndbandaleiguna Ásinn við Nesveg í Stykkishólmi í gærnótt.

Innbrotsþjófar höfðu á brott með sér alla DVD diska leigunnar, DVD spilara og sælgæti. Þjófarnir spenntu upp hurð myndbandaleigunnar til að komast inn.

Eigandi myndbandaleigunnar, Hjálmar Ingi Magnússon, segir tjónið umtalsvert og að málið fari til tryggingafélags að lokinni rannsókn lögreglu. Leigan var lokuð í dag og verður það áfram næstu daga.

Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við innbrotið. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×