Innlent

Verða feitari og óheilbrigðari

Meiri fita Norðurlandabúar eru meira fyrir fitumeiri mat og sífellt fækkar þeim er borða fiskmeti eða ávexti og grænmeti.
Meiri fita Norðurlandabúar eru meira fyrir fitumeiri mat og sífellt fækkar þeim er borða fiskmeti eða ávexti og grænmeti. MYND/afp.nordicphotos

Norðurlandabúar verða sífellt feitari og óheilbrigðari en samkvæmt nýlegri skýrslu er fimmta hvert barn of þungt og rúmlega fjörutíu prósent fullorðinna glíma við sama vandamál.

Niðurstöður þessar koma fram í skýrslu sem Norræna ráðherranefndin lét gera og voru helstu niðurstöðurnar birtar nýlega. Eru þær svo sláandi að skýrsluhöfundar fullyrða að efnahag norrænu þjóðanna standi bein ógnun af, verði ekkert að gert.

Fram kemur að yfir helmingur Norðurlandabúa stunda enga líkamsrækt og láta sér fátt um finnast hvað þeir láta ofan í sig. Hefur neysla fituríkrar matvöru aukist á kostnað fiskmetis, ávaxta og grænmetis og telja skýrsluhöfundar aðgerða þörf hið snarasta. Hefur ráðherranefndin þegar komið á laggirnar nýrri framkvæmdaáætlun með það að markmiði að sporna gegn þessari þróun.

Íslendingar eru engir eftirbátar annarra norrænna þjóða þegar kemur að óheilbrigði. Að sögn Önnu Elísabetar Ólafsdóttur, forstjóra Lýðheilsustöðvar, sýna rannsóknir hér að rúm fjörutíu prósent kvenna og tæp sextíu prósent karla á aldrinum átján til áttatíu ára telja sig yfir kjörþyngd. Þetta er byggt á svörum fólks og gefur kannski ekki hárrétta mynd en ég get tekið undir þær áhyggjur að ef fram heldur sem horfir mun óheilbrigði hérlendis hafa áhrif á efnahag landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×