Innlent

Vínbúð verður opin lengur

Þjónusta ÁTVR hefur ákveðið að Vínbúðin í Vestmannaeyjabæ fái að standa opin til klukkan 16.00 föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi. Áður hefur verslunin verið lokuð frá föstudegi til og með mánudegi um verslunarmannahelgi.

Í auglýsingu ÁTVR um opnunartímann stóð þó að þetta væri gert samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar. „Þetta er bara okkar afstaða, við gerum engar athugasemdir við þetta. Vonandi táknar þetta þjónustu fyrir þjóðhátíðargesti," segir Elliði Vignisson bæjarstjóri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×