Viðskipti innlent

FL nálgast 200 milljarða

Miklar hækkanir á FL Group hafa fleytt félaginu fram fyrir Straum-Burðarás yfir verðmætustu félög Kauphallar Íslands. Virði FL Group var 184 milljarðar króna í gær, fjórum milljörðum meira en virði Straums. FL Group hefur hoppað upp um sextíu milljarða króna á nokkrum vikum vegna vangaveltna um mikinn söluhagnað af Icelandair. Einnig hefur Landsbankinn hækkað nokkuð og er kominn upp fyrir Glitni að stærð. Munar nú einum fimm milljörðum á þessum tveimur bönkum en um mitt sumar hafði Glitnir þónokkurt forskot á LÍ.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×