Viðskipti erlent

Forstjóri í steininn

Bernard Ebbers
Bernard Ebbers

Bernard Ebbers, stofnandi og fyrrum forstjóri bandaríska fjarskiptafélagsins WorldCom, fór í fangelsi í Bandaríkjunum í gær til að afplána dóm sem hann hlaut í fyrra.

Ebbers var dæmdur í 25 ára fangelsi í fyrra fyrir fjársvik, bókhalds- og skjalafals með það fyrir augum að hækka gengi hlutabréfa í fyrirtækinu þegar hann gegndi stöðu forstjóra þess á árunum 1985 til 2002. Svikin eru talin nema 11 milljörðum Bandaríkjadala eða 173 milljörðum íslenskra króna en þau leiddu til gjaldþrots fyrirtækisins og eins þess stærsta vestanhafs árið 2002. Ebbers hefur margsinnis áfrýjað dómnum en árangurslítið.Í dómsniðurstöðu í máli hans segir, að hann hafi átt beina aðild að því að falsa afkomutölur fyrirtækisins til að hækka gengi hlutabréfa þess.

Ebbers er 65 ára að aldri og þykir ljóst að sitji hann af sér allan dóminn muni hann verða um nírætt þegar hann fær frelsi á nýjan leik. Líkur benda hins vegar til að hann fái reynslulausn fyrr eða eftir 15 ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×