Viðskipti innlent

Nýsir kaupir 69% í Operon

Sigfús Jónsson, Hjá Nýsi Dótturfélag Nýsis kaupir 69 prósenta hlut í bresku fasteignastjórnunarfélagi.
Sigfús Jónsson, Hjá Nýsi Dótturfélag Nýsis kaupir 69 prósenta hlut í bresku fasteignastjórnunarfélagi.

Dótturfélag Nýsis í Bretlandi hefur eignast 69 prósenta hlut í breska fasteignastjórnunarfélaginu Operon og styrkir þar með stöðu sína í einkaframkvæmd og fasteignastjórnun á breska markaðnum.

Breska félagið hefur meðal annars gert samninga við stjórnvöld, skóla og sjúkrahús um fasteignastjórnun sem þýðir að Operon rekur byggingarnar og veitir ýmsa stoðþjónustu í þeim.

Áætluð velta Operon á þessu ári er um sex milljarðar króna og eru átta hundruð manns í vinnu hjá fyrirtækinu. Kaupverð er trúnaðarmál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×