Viðskipti innlent

Exista selur tryggingafélag

exista Exista hefur selt hlut sinn í Verði Íslandstryggingu vegna takmarkandi afstöðu samkeppnisyfirvalda.
exista Exista hefur selt hlut sinn í Verði Íslandstryggingu vegna takmarkandi afstöðu samkeppnisyfirvalda.
Exista gekk frá sölu á öllum hlut sínum í Verði Íslandstryggingu hf., eða 56,65 prósenta hlut, á mánudagskvöld. Söluverð er trúnaðarmál.

Sigurður Valtýsson, forstjóri Exista, segir að afstaða samkeppnisyfirvalda hafi takmarkað möguleika félagsins til hagræðingar í rekstri og því hafi verið ákveðið að ganga að tilboði í hlutina. Salan hefur óveruleg áhrif á efnahag Exista, sem mun halda áfram að efla VÍS, að sögn Sigurðar.

Kaupandi hlutanna er Klink ehf., sem er annar stærsti hluthafinn í Verði Íslandstryggingu og mun það ráða um 63 prósentum hluta í félaginu eftir kaupin.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×