Tónlist

Spilar með sex hljómsveitum á Airwaves

Tobbi hljómborðsleikari Spilar með sex hljómsveitum á Airwaves.
Tobbi hljómborðsleikari Spilar með sex hljómsveitum á Airwaves.

Hljómborðsleikarinn Þorbjörn Sigurðsson hefur í nógu að snúast á yfirstandandi Airwaves-hátíð. Hann kemur alls fram með sex hljómsveitum sem telja má líklegt að sé met á hátíðinni.

Ég byrjaði á því að spila með The Telepathetics á miðvikudagskvöldið en svo var bara frí í gær. Í kvöld byrja ég með Jeff Who? á Gauknum og hleyp svo upp í Þjóðleikhúskjallara til að spila með Kalla sem var í Tenderfoot. Svo endar þetta á Dr. Spock á Nasa. Annað kvöld spila ég með Pétri Ben og á sunnudaginn með Stranger, segir Þorbjörn, eða Tobbi eins og hann er oftast kallaður.

Algengt er að íslenskir tónlistarmenn spili með fleiri en einni hljómsveit á Airwaves en ekki er vitað til þess að nokkur hafi spilað með eins mörgum og Tobbi nú. Guðni Finnsson bassaleikari mun hafa leikið með fjórum eða fimm hljómsveitum þegar mest var samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Einhverjar hliðranir voru gerðar á dagskrá Airwaves svo Tobbi næði að spila með öllum hljómsveitunum, en það var ekki að hans frumkvæði. Ég var búinn að sjá fyrir mér að vera með skeiðklukkuna og reyna að ná þessu þannig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×