Menning

Fjölskyldusýningar dansflokksins

Íslenski dansflokkurinn Kynnir starf sitt fyrir ungum og öldnum.
Íslenski dansflokkurinn Kynnir starf sitt fyrir ungum og öldnum. MYND/hörður

Íslenski dansflokkurinn opnar dyr sínar í nóvember og býður til þriggja fjölskyldusýninga sem henta jafnt ungum sem öldnum. Mat flokksins er að mikilvægt sé að auðvelda fólki að kynnast dansi og sjá hversu skemmtilegt það getur verið að koma á danssýningu. Almenn þekking á danslistum er ekki mikil á Íslandi en Íslendingar eru mikil leikhúsþjóð en oft þarf meira til að fólk mæti á danssýningar – að minnsta kosti í fyrsta skiptið!

Flokkurinn býður börnum, 12 ára og yngri, frítt á sýningarnar sem eru settar saman úr léttum og skemmtilegum brotum úr fyrri uppfærslum þeirra, Lúnu eftir Láru Stefánsdóttur, Súrt og sætt eftir Didy Veldman og Screen-saver eftir Rami Be’er. Ungmenni á aldrinum 13-16 ára fá aðgöngumiða á hálfvirði.

Sýningarnar verða á laugardögum í nóvember, sú fyrsta á morgun kl. 14.


Tengdar fréttir

Vill verða ljóðskáld

Hinn ungi leikari Daniel Radcliffe, sem er þekktastur fyrir túlkun sína á galdrastráknum Harry Potter, vill gerast ljóðskáld í nánustu framtíð. Þessi sautján ára gamli leikari er til í að leggja leiklistarframann á hilluna ef hann „fyndi andann koma yfir sig" eins og hann orðar það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.