Menning

Ræðir þýðingu öndvegisverka

Friðrik Rafnsson, þýðandi og bókmenntafræðingur Spjallar um Óbærilegan léttleika tilverunnar.
Friðrik Rafnsson, þýðandi og bókmenntafræðingur Spjallar um Óbærilegan léttleika tilverunnar. MYND/GVA

Friðrik Rafnsson, bókmenntafræðingur og þýðandi, fjallar um skáldverkið Óbærilegan léttleika tilverunnar eftir Milan Kundera í fyrirlestraröðinni „Þýðing öndvegisverka“ á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur á morgun.

Skáldverk þetta er af mörgum talið vera ein merkasta skáldsaga sem rituð var á 20. öld, margradda bókmenntaverk sem höfðar til margra þátta í lesandanum í senn, allt frá vitsmunalegri skemmtun til líkamlegrar munúðar. Hún kom fyrst út í París í febrúar 1984 og aðeins tveimur og hálfu ári síðar, í nóvember 1986, kom hún út hjá bókaútgáfu Máls og menningar hérlendis og hlaut afbragðsviðtökur íslenskra gagnrýnenda og lesenda. Um þessar mundir eru því rétt tuttugu ár liðin frá því skáldsagan kom fyrst út á íslensku.

Í fyrirlestrinum rifjar Friðrik upp forsögu og ástæðu þess að hann réðst í að þýða Óbærilegan léttleika tilverunnar, hvernig hann vann það verk, hvaða þýðingavandi kom helst upp og það hvernig gekk að ná þessum fjölbreyttu eðliskostum skáldsögunnar yfir á íslensku.

Friðrik Rafnsson er bókmenntafræðingur og þýðandi. Hann hefur þýtt allmargar skáldsögur eftir Kundera, en einnig eftir Denis Diderot, Michel Houellebecq, Pascal Quignard, Tahar Ben Jelloun og fleiri.

Fyrirlesturinn flytur Friðrik í stofu 201 í Árnagarði á morgun og hefst hann kl. 16.30






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.