Ekki minni halli í tólf mánuði 30. nóvember 2006 07:00
Halli á vöruskiptum við útlönd hefur ekki mælst minni en nú síðastliðna tólf mánuði. Sjö milljarða halli var á vöruskiptum í október miðað við 6,4 milljarða í október 2005 á föstu gengi. Nýjar tölur sem Hagstofan birti í gær sýna að í október voru fluttar út vörur fyrir 20 milljarða króna og inn fyrir 27 milljarða. Fyrstu tíu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 193,2 milljarða króna en inn fyrir 302,4 milljarða. Nemur því hallinn 109,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 81,8 milljarða á sama gengi. Verðmæti vöruútflutnings fyrstu tíu mánuði ársins var 12,5 milljörðum eða 6,9 prósentum meira en á sama tíma árið áður. Í Morgunkorni Glitnis segir að álútflutningur hafi aukist um rúm fjörutíu prósent frá sama tíma í fyrra á föstu gengi. Útflutt magn áls hafi þó aðeins aukist um rúm fimm prósent svo hækkunin kemur fyrst og fremst til af háu heimsmarkaðsverð á áli. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tíu mánuði ársins var 39,8 milljörðum eða 15,2 prósentum meira en árið áður. Rúman helming af þeirri aukningu, eða 20,8 milljarða, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem náði hámarki í sumar og hefur aukist um 35,1 prósent á tímabilinu. Úr þeim innflutningi hefur hins vegar dregið verulega undanfarna mánuði.
Viðskipti Mest lesið „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Viðskipti innlent Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Samstarf Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Sjá meira