Sport

Slæmt gengi hjá KR

Viðar Guðjónsson sýnir hér skemmtilega takta í leik Fram og KR í gær. Fram vann leikinn 3-2 í fjörugum leik liðanna í Safamýri.
Viðar Guðjónsson sýnir hér skemmtilega takta í leik Fram og KR í gær. Fram vann leikinn 3-2 í fjörugum leik liðanna í Safamýri. fréttablaðið/stefán

"Ég hef ekki áhyggjur af gengi okkar þrátt fyrir að vissulega geti ég ekki verið sáttur með árangur okkar til þessa. Óheppni spilar inn í þar sem við höfum verið að spila með en ekki fengið úrslitin með okkur," sagði Teitur Þórðarson, þjálfari KR við Fréttablaðið í gær en liðið tapaði í lokaleik deildabikarsins í gær fyrir 1. deildarliði Fram, 3-2.

KR hefur tapað öllum leikjum sínum í dildabikarnum fyrir liðum í Landsbankadeildinni. KR hefur aðeins unnið tvo leiki, gegn 1. deildarliðunum Þór og KA.

"Við gáfum Fram tvö ömurleg mörk í leiknum og eina vítaspyrnu. Einstaklingsmistökin voru ekki að kosta okkur í fyrsta skipti og ég hef aldrei séð önnur eins mistök og í leiknum gegn Fram. Fram að síðustu tveimur leikjum vorum við að spila mjög vel, við þurfum að finna þann takt aftur. þá hefur lykilmaður á borð við Grétar Hjartarson ekki verið með og það munar um minna," sagði Teitur sem segir að sjálfstraust skorti hjá einhverjum leikmanna liðsins.

"Við þurfum á einum sigri að halda til að fá sjálfstraustið aftur upp hjá nokkrum mönnum. Það eru aðeins þrjár vikur í mót og við megum ekki við því að tapa fleiri leikjum. Það er ekki laust við að fiðringur sé kominn í okkur enda stutt í mót" sagði Teitur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×