Lífið

Dr. Mister & Mr. Handsome

Íslenska danshljómsveitin "Dr. Mister & Mr. Handsome" hefur komið fram á íslenska tónlistarmarkaðinn eins og þruma úr heiðskíru lofti á þessu ári. Hljómsveitin gerði sér lítið fyrir og tyllti sér í 1. sæti Netlista Tónlist.is í þessari viku með nýjasta smelli sínum "Is it Love?" og skákaði þar með netdrottningunni sjálfri, Ragnheiði Gröndal og nýja lagi hennar, Með þér.



Sveitin á alls 4 lög á listanum sem er einsdæmi fyrir hljómsveit sem ekki hefur enn gefið út plötu, en ásamt "Is it Love?" eru lögin "Kokaloca", "Boogie Woogie Sensation" og "Habit Forming Habits" sem er B-hliðar lag, á Netlistanum.

Hægt er að nálgast netlistann hér: http://www.tonlist.is/Netlistinn.aspx

Dr. Mister & Mr. Handsome eru þessa dagana að leggja lokahendur á fyrstu stúdíóplötu sína sem er væntanleg í verzlanir síðari part júlímánaðar en upptökur á plötunni hafa staðið yfir síðastliðnar vikur í Stúdíó Sýrlandi.

Platan sem mun bera nafnið "Dirty, Slutty Hooker Money" mun innihalda 13 lög en á meðal þeirra eru lögin, "Kokaloca", "Boogie Woogie Sensation" og "Is it Love?" sem er vinsælasta lag landsins um þessar mundir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×