Enski boltinn

Martröðin heldur áfram hjá Delaney

Delaney spilaði síðast með Villa í bikarnum í febrúar, en þessi þrítugi varnarmaður á eitt ár eftir af samningi sínum við Villa
Delaney spilaði síðast með Villa í bikarnum í febrúar, en þessi þrítugi varnarmaður á eitt ár eftir af samningi sínum við Villa NordicPhotos/GettyImages
Meiðslakálfurinn Mark Delaney hjá Aston Villa þarf enn að bíða eftir því að geta unnið sér sæti í liðinu eftir að í ljós kom að hann þarf að fara í annan hnéuppskurðinn á skömmum tíma. Delaney gat lítið sem ekkert spilað með Villa á síðustu leiktíð, en spilaði landsleik fyrir Wales í síðasta mánuði. Það vildi ekki betur til en að nú þarf kappinn í uppskurð á ný.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×