Rafeindastýrður gervifótur Össurar fær bandarísk verðlaun 15. nóvember 2006 00:01 frá kynningarfundinum Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, og Hilmar Janusson, framkvæmdastjóri þróunardeildar Össurar, virða rafeindastýrða gervifótinn með gervigreindinni fyrir sér. Markaðurinn/GVA MYND/GVA
Bandaríska vísindatímaritið Popular Science hefur veitt stoðfyrirtækinu Össur hf. viðurkenninguna „Best of What‘s New“ fyrir rafeindastýrðan gervifót með gervigreind, þann fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Fóturinn er íslensk hönnun frá grunni og framleiddur í húsnæði Össurar á Grjóthálsi í Reykjavík. Fyrirtækið hlýtur verðlaunin í annað sinn en Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, telur að slíkt sé einsdæmi. Össur hlaut verðlaunin í fyrra fyrir mótorknúið gervihné. Popular Science hefur veitt verðlaunin frá árinu 1987 en á meðal þeirra sem þau hafa hlotið eru bílasmiðirnir hjá BMW og Porsce og tæknifyrirtækin Sony, Apple og Intel. Gervifóturinn hefur fengið mjög góðar viðtökur og fengið talsverða umfjöllun á erlendri grundu en bandaríska dagblaðið New York Times og sjónvarpsfréttastofan CBS Evening News hafa meðal annars fjallað um hann. Til að færa enn frekari sönnur á þá styrku stöðu sem Össur skipar á alþjóðlegu tæknisviði var blaðamaður bandaríska tæknitímaritsins Wired Magazine mættur hingað til lands í síðustu viku, gagngert til að vera viðstaddur kynningarfund Össurar á föstudag þar sem gervifóturinn var sýndur og þróunarferli hans lýst. Þá sýndi Guðmundur Ólafsson hvernig fóturinn virkar. Guðmundur var ungur að aldri þegar hann fótbrotnaði. Brotið greri illa og var Guðmundur vart vinnufær þar til hann lét taka af sér fótinn fyrir tveimur árum. Hann hefur upp frá því unnið með þróunardeild Össurar og tekið þátt í prófunum á gervifætinum.framför frá fyrri gervifótumÞróunarteymið Fjöldi starfsmanna hjá Össuri hefur síðan í febrúar á síðasta ári unnið að þróun rafeindastýrða gervifótarins, sem er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum. Markaðurinn/GVAÞróun gervifótarins hófst í febrúar í fyrra en hann byggir á þeim grunni sem lagður var með mótorknúna gervihnénu sem fyrirtækið hlaut verðlaun fyrir á síðasta ári og skýrir það að mörgu leyti hversu stuttan tíma tók að þróa fótinn, sem nefnist Proprio Foot.Gervigreindin, sem fóturinn býr yfir, hefur þá kosti umfram aðra gervifætur að fóturinn lagar sig að mismunandi undirlagi og skiptir engu hvort heldur er gengið á ís, upp brekku, í stiga eða á jafnsléttu. Þetta er mikil framför, bæði fyrir þá sem þurfa á gervifæti að halda og fyrir Össur, að sögn Jóns Sigurðssonar sem benti á að eldri gerðir gervifóta hafi haft ýmsa vankanta. Fólk hafi líkt og haltrað, átt í erfiðleikum með að velja skó þar sem gervifóturinn þurfti aðrar stærðir en heili fóturinn og svo mætti lengi telja.Jón segir nýja gervifótinn, sem gerður er úr trefjaefni, mikla breytingu fyrir þann sem þarf slíkan. Og eftirspurnin sé mikil hjá þeim sem á fætinum þurfi að halda, ekki síst hjá ungu fólki sem til dæmis hafi misst fót eða fætur í stríðsátökum eða slysum.Beintengt við taugarnarGervigreindin í gervifæti Össurar býr yfir þeim kosti að tiltölulega auðvelt er að þjálfa hann auk þess sem fóturinn hefur mjög gott fjarlægðarskyn, jafnvel betra en notandi fótarins hefur. Jón segir framleiðendur gervilima á borð við Össur horfa til þess að tengja gervifæturnar beint við taugar líkamans í framtíðinni en slíkt gefur notandanum umtalsvert meiri stjórn yfir gervifætinum en nokkru sinni fyrr. Þótt slíkt sé fræðilega mögulegt er þó enn langt þangað til það verður að veruleika, að hans sögn.
Héðan og þaðan Viðskipti Mest lesið „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Atvinnulíf Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Úr boltanum í tryggingarnar Viðskipti innlent Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Sjá meira