Innlent

Þvottavél stolið

Þvottavél að þvo. Ekki fylgdi sögunni hvort að eitthvað hefði verið í vélinni.
Þvottavél að þvo. Ekki fylgdi sögunni hvort að eitthvað hefði verið í vélinni. MYND/Getty Images

Nýlegri þvottavél var stolið úr sameign fjölbýlishúss í vesturbænum í gærmorgun. Tjónið er að sjálfsögðu bagalegt en það snertir nokkrar fjölskyldur. Þá var brotist inn í annað hús í vesturbænum og þar var meðal annars tölvubúnaður hafður á brott. Í austurbænum var líka brotist inn á tveimur stöðum og var snjóbretta saknað á öðrum staðnum en á hinum var engu stolið. Úr miðbænum hurfu geislaspilari og geisladiskar úr bíl um miðjan dag.

Lögreglunni bárust tvær tilkynningar um bensínþjófa og kona á miðjum aldri var tekin fyrir þjófnað í verslunarmiðstöð. Tölvu var stolið frá skrifstofu í austurbænum og jakka var stolið frá stofnun um hádegisbilið. Jakkinn komst þó fljótt aftur til skila en sá sem hafði tekið hann ófrjálsri hendi bar við misskilningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×