Fótbolti

Deschamps hefur áhuga á Masherano

Didier Deschamps
Didier Deschamps AFP

Didier Deschamps, þjálfari ítalska liðsins Juventus, hefur viðurkennt að hann hafi mikinn áhuga á að fá til sín leikmann á borð við Javier Mascherano hjá West Ham, en þrálátur orðrómur er á kreiki um að Argentínumennirnir Masherano og Carlos Tevez verði seldir frá enska félaginu í janúar.

Deschamps viðurkenndi í samtali við ítalska fjölmiðla að hann hefði áhuga á Masherano eða manni á borð við hann, sem hefði reynslu með landsliði og ungur að árum. Deschamps er sagður fá leyfi til að kaupa leikmenn ef Juve fer upp úr B-deildinni eins og líklegt verður að teljast, enda er sagt að menn eins og Gianluigi Buffon og David Trezeguet muni líklega fara frá félaginu nema það verði hæft í að keppa um meistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×