Innlent

Kaldavatnslaust í Borgarnesi

MYND/Vilhelm

Ekkert kalt vatn er í Borgarnesi eftir að kaldavatnsæð fór þar í sundur laust fyrir klukkan tvö. Óhappið varð á framkvæmdasvæði við verlsunina Bónus, skammt frá Borgarfjarðarbrúnni. Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur að búið hafi verið að hengja vatnsæðina upp vegna framkvæmdanna en bakki gaf sig með þeim afleiðingum að vatnsleiðslan kubbaðist í sundur. Vel gekk að loka fyrir vatnsrennsli og verið er að vinna að viðgerð. Einhverjar stundir getur tekið að koma á fullum vatnsþrýstingi að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×