Guevara malar gull í Bólivíu 15. júní 2006 05:00 Ernesto Che guevara Byltingarmaðurinn er vinsæll sem aldrei fyrr í Rómönsku Ameríku.Nordicphotos/afp
Minningu byltingarforingjans Che Guevara á að nýta í anda einkaframtaks og markaðshyggju. Á heimasíðu Reuters-fréttastofunnar er greint frá því að í Bólivíu ætli frumkvöðlar í ferðamannaþjónustu að sækja inn á markað "vinstri-túrisma" með því að leggja vegarslóða sem kenndur verður við dvöl Guevaras í Bólivíu. Che ætlaði sér að steypa stjórn Bólivíu og koma á kerfi svipuðu því sem hann barðist fyrir á Kúbu, þegar bandaríska leyniþjónustan lét Bólivíumenn taka hann af lífi árið 1967. Mikil vinstrisveifla ríkir nú í stjórnmálum Rómönsku Ameríku og var það eitt fyrsta verk Evo Morales, nýkjörins forseta Bólivíu og vinar Fídels Kastró, að hengja upp gríðarstóra mynd af Che á skrifstofu sinni. Það eru hins vegar sjálfstæðir athafnamenn, alls ótengdir forsetanum, sem ætla sér að selja ferðamönnum minningu Guevaras. Til stendur að sameina ævintýralega pílagrímaferð og náttúruskoðun um stórskorin einangruð fjallasvæði sem hafa verið meira og minna ósnert síðan Che reið þar um héruð. Einnig skulu endurgerðar herbúðir byltingarmannanna og farið í skoðunarferðir um fangaklefa og hótelherbergi. Athafnamennirnir segjast ekki gera þetta af hugsjón, heldur sjái þeir einfaldlega "glitta í gull ferðamannanna".
Erlent Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira