Enski boltinn

Heimili Peter Crouch lagt í rúst

Peter Crouch á að hafa komið að heimili sínu í rúst eftir að hann skoraði þetta smekklega mark í vikunni
Peter Crouch á að hafa komið að heimili sínu í rúst eftir að hann skoraði þetta smekklega mark í vikunni NordicPhotos/GettyImages

Hinn leggjalangi framherji Liverpool, Peter Crouch, varð fyrir því óláni í vikunni að brotist var inn á heimili hans á meðan hann var að skora tvö mörk fyrir Liverpool gegn Galatasaray í Meistaradeild Evrópu. Fjölda verðmætra muna og bifreið á að hafa verið stolið af heimili hans og það sem eftir stóð var rifið, brotið og bramlað.

Það var breska blaðið The Sun sem fyrst greindi frá þessu, en þó talsmenn lögreglu hefðu staðfest að um innbrot hefði verið að ræða - vildu þeir ekki staðfesta að um íbúð Crouch hefði verið að ræða. Mikil alda innbrota hefur verið á heimili knattspyrnumanna á liðnum mánuðum og á meðal manna sem orðið hafa fyrir þessum miklu óþægindum eru Paul Robinson, Frank Lampard, Wayne Rooney og nú síðast Andy Van der Meyde hjá Everton - en þjófarnir sem brutust inn hjá honum voru það ósvífnir að þeir stálu meira að segja hundinum hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×